Leikið var í 4. deild karla í kvöld og hér að neðan má sjá úrslitin sem fengin eru frá úrslit.net. Síðar í kvöld koma inn viðtöl úr tveimur leikjum á síðuna.
A-riðill:
KFG er með þriggja stiga forystu í A-riðli en liðið vann 2-1 útisigur gegn Álftanesi í kvöld. KFG hefur 13 stig, Þróttur Vogum með 19 stig og Álftanes og KFS með 9 stig hvort lið.
Álftanes 1 - 2 KFG
0-1 Daði Kristjánsson ('13)
1-1 Magnús Ársælsson ('56)
1-2 Bjarni Pálmason ('69)
*Leikmaður úr sitthvoru liðinu fékk rautt í uppbótartíma.
Stokkseyri 1 - 6 Kóngarnir
Mark Stokkseyrar: Björgvin Karl Guðmundsson.
Mark Kóngana: Adam Gústavsson 3, Guðjón Þór Valsson 2, Gunnar Björgvin Ragnarsson.
Afríka 0 - 3 Árborg
0-1 Hartmann Antonsson
0-2 Magnús Helgi Sigurðsson
0-3 Arnar Freyr Óskarsson víti
B-riðill:
Berserkir sótti stig í toppslag B-riðils. Berserkir eru á toppi riðilsins með 11 stig en Skínandi hefur 10 stig. Stál-úlfur er með 9 stig eftir sigur á KH og Skallagrímur í fjórða sæti með 8 stig.
Skínandi 2 - 2 Berserkir
0-1 Kári Einarsson ('5)
1-1 Willard Nökkvi Ingason ('12)
1-2 Einar Guðnason ('20)
2-2 Hrannar Heimisson ('24)
KH 0 - 1 Stál-úlfur
0-1 Zlatko Krickic ('37)
Kormákur/Hvöt 0 - 0 Skallagrímur
C-riðill:
Hvíti Riddarinn tók efsta sæti C-riðils með sigri á Léttir. Riddarinn er með 11 stig, Elliði 10 og Einherji 10 en þessi þrjú lið skera sig algjörlega úr. Sex stig eru niður í Ými sem er í fjórða sæti.
Hvíti Riddarinn 3 - 1 Léttir
1-0 Bjarki Þór Arnarsson ('16)
2-0 Guðmundur Jóhann Arngrímsson ('35)
3-0 Trausti Traustason ('42)
3-1 Sjálfsmark ('88)


