Það verður flottur leikur í Pepsi-deildinni í kvöld en sjöundu umferðinni lýkur þegar Valur og ÍBV eigast við klukkan 18:00 á Vodafone-Hlíðarenda.
Stuðningsmenn Vals ætla að heiðra minningu Hermanns Gunnarssonar og verður borðinn góði sem var á landsleiknum um daginn staðsettur á Hlíðarenda í kvöld.
Stuðningsmenn Vals ætla að heiðra minningu Hermanns Gunnarssonar og verður borðinn góði sem var á landsleiknum um daginn staðsettur á Hlíðarenda í kvöld.
Valur er í fjórða sæti með 14 stig en ÍBV getur jafnað Valsmenn að stigum með því að hirða öll stigin úr þessum leik í kvöld.
James Hurst, leikmaður Vals, getur ekki leikið gegn sínu fyrrum félagi að þessu sinni þar sem hann þarf að afplána leikbann.
Að sjálfsögðu verður leikurinn í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net og viðtöl koma inn fljótlega eftir að honum lýkur.
Pepsi-deild karla:
18:00 Valur - ÍBV (Vodafonevöllurinn)
4. deild karla:
A-riðill: 20:00 Afríka - Árborg (Leiknisvöllur)
A-riðill: 20:00 Álftanes - KFG (Bessastaðavöllur)
A-riðill: 20:00 Stokkseyri - Kóngarnir (Stokkseyrarvöllur)
B-riðill: 20:00 Kormákur/Hvöt - Skallagrímur (Hvammstangavöllur)
B-riðill: 20:00 KH - Stál-úlfur (Hlíðarendi)
B-riðill: 20:00 Skínandi - Berserkir (Samsung völlurinn)
C-riðill: 20:00 Hvíti Riddarinn - Léttir (Tungubakkavöllur)
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |




