Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 18. júní 2013 15:46
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Andy Carroll í læknisskoðun hjá West Ham
Andy Carroll, framherji Liverpool, er í læknisskoðun hjá West Ham samkvæmt heimildum Sky Sports.

Carroll skoraði sjö mörk í 24 leikjum með West Ham á láni á síðasta tímabili.

Líklegt er að Carroll skrifi undir sex ára samning við West Ham í vikunni en félagið mun borga Liverpool 15 milljónir punda fyrir þjónustu leikmannsins.

Carroll kom til Liverpool frá Newcastle á 35 milljónir punda á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar 2011.

Sam Allardyce, stjóri West Ham, er mikill aðdáandi Carroll en leikmaðurinn var efstur á óskalista hans fyrir næsta tímabil.
Slapp
banner
banner
banner