Hið sögufræga lið ÍA er án þjálfara eftir að Þórður Þórðarson steig frá borði í dag. Ekki hefur verið tilkynnt um eftirmann hans en Fótbolti.net skoðar hér átta nöfn sem gætu komiið til greina á Skipaskaga.
Kristján Guðmundsson - Er á lausu og til í slaginn. Vildi ekkert tjá sig þegar Fótbolti.net hafði samband við hann. Málið gamla úr ÍA - Keflavík er gleymt og grafið.
Zoran Miljkovic - Fluttur til landsins. Lék á sínum tíma með ÍA við góðan orðstír. Þekktur fyrir gott skipulag og aga en skemmtilegan fótbolta sem þjálfari.
Þorvaldur Örlygsson - Ekki hefur náðst í Þorvald og hann ekkert tjáð sig við fjölmiðla síðan hann lét skyndilega af störfum sem þjálfari Fram.
Þorlákur Árnason - Klókur þjálfari sem var á sínum tíma yfirþjálfari yngri flokka á Skaganum en stýrir nú kvennaliði Stjörnunnar.
Sigurður Jónsson - Er án atvinnu en búsettur í Svíþjóð. Gamall leikmaður ÍA og gæti verið möguleiki sem Skagamenn horfa til.
Dean Martin - Var aðstoðarmaður Þórðar Þórðarsonar og stýrir æfingu liðsins í kvöld. Hefur reynslu sem aðalþjálfari síðan hann var með KA.
Þórður Guðjónsson - Leikur hann sama leik og Rúnar Kristinsson gerði hjá KR? Jafnvel hafa heyrst sögur um að Þórður gæti tekið við liðinu út tímabilið og þá mæti Pétur Pétursson.

