Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 18. júní 2013 15:19
Magnús Már Einarsson
Dean Martin stýrir æfingu hjá ÍA í kvöld
Dean Martin.
Dean Martin.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Óljóst er hvort ÍA muni ráða eftirmann Þórðar Þórðarsonar fyrir leikinn gegn Breiðabliki í Borgunarbikarnum á fimmtudag.

Dean Martin aðstoðarþjálfari mun stýra æfingu hjá ÍA í kvöld og möguleiki er á að hann stýri liðinu á fimmtudag.

,,Það kemur í ljós hvernig við tæklum það. Það er fullt af góðum mönnum uppi á Akranesi sem gætu hjálpað okkur í þessu millibils ástandi," sagði Ingi Fannar Eiríksson formaður knattspyrnufélagsins ÍA við Fótbolta.net í dag.

Ingi Fannar segir að Skagamenn hafi ekki haft samband við annan þjálfara ennþá.

,,Við ætlum að flýta okkur hægt. Þetta gerðist bara í gær og við tökum okkur tíma. Við ræddum saman í gærkvöldi og fórum að ræða okkar á milli hvað við sjáum gerast í framtíðinni en það er ekki komið á neitt stig hjá okkur. Við erum ekki búnir að hafa samband við neinn."
Slapp
banner
banner