,,Ég ætla ekki að hætta þó að fólk vilji að ég hætti"
Edda Garðarsdóttir og Ólína Viðarsdóttir eru að reyna að losna undan samningi hjá Chelsea og stefna á að flytja heim til Íslands.
Edda og Ólína sömdu við Chelsea í janúar síðastliðnum en þær eru ekki ánægðar í herbúðum félagsins.
Edda og Ólína sömdu við Chelsea í janúar síðastliðnum en þær eru ekki ánægðar í herbúðum félagsins.
,,Við erum að reyna að losna. Ólína sótti um góða vinnu heima og fékk hana en síðan er fullt af öðrum atriðum sem spila inn í," sagði Edda í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Þeir lofuðu okkur hinu og þessu og síðan var það kjaftæði. Við stóðum í ströngu við að fá einföldustu hluti í lag og þeir komu aldrei í lag."
Þrátt fyrir að leika í efstu deild á Englandi æfir lið Chelsea oft ekki nema einu sinni eða tvisvar í viku. Það kunna Edda og Ólína illa að meta.
,,Við erum ekki alveg til í að æfa 1-2 í viku. Það eru nánast allar í fullri vinnu nema landsliðsmennirnir. Það er ein sem bjó í Wales og þurfti að keyra góða fjóra tíma aðra leið til að komast á æfingu svo hún æfði bara einu sinni í viku."
,,Þetta er í London og ef einhver í liðinu býr í Norður-London og ætlar að komast á æfingu eftir vinnu þá tekur það tvo tíma. Klúbburinn er heldur ekki að setja alltof mikinn pening í þetta og þeir eru bara aðeins eftir á."
Edda og Ólína stefna á að losna frá Chelsea og spila áfram í Pepsi-deildinni.
,,Ég ætla ekki að hætta þó að fólk vilji að ég hætti, Kolbeinn Tumi og félagar. Ég hætti á mínum forsendum," sagði Edda.
Edda staðfesti að hún og Ólína hafi rætt við félög í Pepsi-deildinni en þær æfðu meðal annars með Val á dögunum.


