Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 18. júní 2013 17:58
Elvar Geir Magnússon
EMU21: Thiago fór á kostum í úrslitaleiknum
Ítalía 2 - 4 Spánn
0-1 Thiago Alcantara ('6)
1-1 Ciro Immobile ('10)
1-2 Thiago Alcantara ('31)
1-3 Thiago Alcantara (víti '38)
1-4 Isco (víti '66)
2-4 Fabio Borini ('80)

Thiago Alcantara, fyrirliði spænska U21 landsliðsins, fór á kostum þegar liðið vann 4-2 sigur gegn Ítalíu í úrslitaleik EM U21 liða. Thiago, sem leikur með Barcelona, skoraði fullkomna þrennu í úrslitaleiknum. Eitt með hægri fæti, annað með vinstri og hitt með skalla.

Miðjumaðurinn Isco átti einnig stórleik en þessi magnaði leikmaður Malaga hefur verið orðaður við Real Madrid og Manchester City.

Þetta er annað Evrópumót U21-landsliða í röð sem Spánn vinnur en liðið var einfaldlega klassa ofar en mótherjar sínir í dag.

Ítalía U21: Bardi, Donati, Bianchetti, Caldirola, Regini, Florenzi, Rossi, Verratti, Insigne, Borini, Immobile. (Varamenn: Colombi, Biraghi, Capuano, Marrone, Gabbiadini, Destro, Sansone, Bertolacci, Paloschi, Saponara, Crimi, Leali)

Spánn U21: De Gea, Montoya, Bartra, Martinez, Moreno, Koke, Illarramendi, Thiago, Tello, Morata, Isco. (Varamenn: Marino, Nacho, Rodrigo, Camacho, Muniesa, Alvaro, Sarabia, Muniain, Carvajal, Vazquez, Robles)
Slapp
banner
banner