Gríðarlega stór mótmæli áttu sér stað í Brasilíu í gærkvöldi og dreifðust þau um allt landið. Álfukeppnin í fótbolta stendur nú yfir í landinu og á næsta ári fer þar fram sjálf heimsmeistarakeppnin.
Verið er að mótmæla gríðarlegum útgjöldum vegna þessara stórmóta á meðan heilsugæsla í landinu er léleg og einnig er því mótmælt að hækka á fargjald í almenningssamgöngum.
Í stærstu borg landsins Sao Paulo var kveikt í bílum, í höfuðborginni Brasilíu klifraði fólk ofan á ráðhúsið og í Rio de Janeiro komu upp harkaleg átök milli mótmælenda og lögreglu.
Óánægja fólks hefur aukist mikið síðan Álfukeppnin hófst síðasta laugardag og í gær sauð algjörlega upp úr. Lögreglan skaut gúmmíkúlum og notaðist við táragas til að reyna að hemja fólk.
Mótmælendur hafa reynt að komast inn á leikvangana meðan leikir Álfukeppninnar hafa staðið yfir en lögreglan hefur hingað til náð að hindra að þeir nái fram vilja sínum.


