,,Þeir voru léttir í fyrri hálfleik," grínaðist Heiðar Númi Hrafnsson markvörður Hvíta Riddarans eftir 3-1 sigur liðsins á Létti í fjórðu deildinni í kvöld.
Heiðar Númi varði vítaspyrnu frá Tinna Kára Jóhannessyni undir lok leiksins.
,,Þeir skjóta alltaf þarna megin. 95% af vítum eru þarna megin og ég er búinn að komast að því núna. Nú er lokað í öllum vítum. Ég fer alltaf í hornið sem þeir skjóta í."
Hvíti Riddarinn er eftir leikinn stigi á undan Elliða og Einherja á toppnum í C-riðli en þau lið eiga bæði leik inni.
,,Við ætlum að fara í úrslitakeppni og við ætlum að fara á Vopnafjörð og vinna. Við ætlum að hafa gaman saman," sagði Heiðar glaðbeittur.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















