Ingi Fannar Eiríksson, formaður knattspyrnufélagsins ÍA, segir að félagið hafi reynt að fá Þórð Þórðarson til að halda áfram sem þjálfari.
Þórður hefur ákveðið að hætta störfum að eigin ósk en stjórn ÍA reyndi að telja honum hughvarf.
Þórður hefur ákveðið að hætta störfum að eigin ósk en stjórn ÍA reyndi að telja honum hughvarf.
,,Við reyndum það en hann óskaði eftir þessu og við urðum að verða við því, því miður," sagði Ingi Fannar við Fótbolta.net í dag.
Skagamenn eru einungis með þrjú stig eftir sjö umferðir í Pepsi-deildinni en Ingi Fannar segir að Þórður hafi haft stuðning stjórnarinnar.
,,Honum var treyst fyrir þessu verkefni, hann hafði fullt traust hjá okkur og hafði ekki fundið annað. Það var lítið búið að horfa til okkar með þjálfaraskipti enda ætluðum við að halda okkar striki."
Þórður hefur stýrt ÍA frá því árið 2009 og Ingi Fannar er ánægður með störf hans,
,,Doddi er þvílíkur toppmaður. Hann er búinn að vinna mjög gott starf og er sennilega einn duglegasti þjálfari sem ÍA hefur verið með í vinnu. Hann hefur unnið sitt starf af fagmennsku. Við þökkum honum kærlega fyrir samstarfið og óskum honum góðs gengis í því sem hann tekur sér fyrir hendur, sama hvað það er."



