Íran og Suður-Kórea náðu í dag að tryggja sér sæti á HM í Brasilíu á næsta ári.
Þau fetuðu þar með í fótspor Ástralíu sem tryggði sér sæti á mótinu í morgun.
Þau fetuðu þar með í fótspor Ástralíu sem tryggði sér sæti á mótinu í morgun.
Íran tryggði sér sæti á HM með því að vinna Suður-Kóreu 1-0 í A-riðli þar sem Reza Ghoochannejad skoraði eina markið.
Suður-Kórea kemst þó einnig áfram á HM þar sem liðið endaði fyrir ofan Úsbekistan á markamun.
Auk Íran, Suður-Kóreu og Ástralíu hafa Japan og gestgjafarnir í Brasilíu tryggt sér sæti á HM.




