,,Við vorum kaffærðir á nokkurra mínútna kafla í fyrri hálfleik og leikurinn tapast þá," sagði Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G, þjálfari Léttis eftir 3-1 tap liðsins gegn Hvíta riddaranum í fjórðu deildinni í kvöld.
Léttir var 3-0 undir í hálfleik og Rikki lét sýna menn heyra það hressilega í hálfleik.
,,Ég spurði hvort að við ætluðum að láta taka okkur þurrt aftan frá. Við unnum góðan sigur í síðustu viku, 3-0. Þar voru menn að berjast í 90 mínútur og gera þetta fyrir hvorn annan. Menn voru ekki að skammast og benda á hinn og þennan."
,,Menn þurfa að líta í eigin barm. Við erum að reyna hælsendingar og flókna hluti. Þetta er fjórða deildin og menn eru með ákveðna getu til að spila í þessari deild. Reyndu þá í guðanna bænum að gera hlutina einfalda."
Rikki er útvarpsmaður á FM957 en útvarpsrödd hans fékk að óma á Tungubökkum í kvöld.
,,Ég er pínu hás eftir hálfleikinn. Ég er yfirleitt voðalega rólegur og rólyndismaður í því sem ég tek mér fyrir hendur, nema þegar ég er inni á vellinum sjálfur þá er ég alveg brjálaður. Ég læt strákana mína yfirleitt um þetta en þeir fengu aðeins að heyra það í fyrri hálfleik. Þeir gerðu líka það sem þeir áttu að gera í seinni hálfleik en því miður var það alltof seint."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























