Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 18. júní 2013 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Thiago: Þetta var fullkomið mót
Thiago Alcantara, leikmaður Barcelona og spænska U21 árs landsliðsins, segir Evrópumótið hafi verið fullkomið, en spænska liðið varð meistari eftir sigur á Ítölum í dag.

Thiago var lykilmaður í liði Spánar sem slátraði þessari keppni frá A til Ö. Liðið endaði á því að klára dæmið í úrslitaleiknum svo með 4-2 sigri á ítalska landsliðinu, en liðið vann einnig þessa keppni fyrir tveimur árum.

,,Mér finnst þetta vera fullkomið mót. Við unnum alla leikina og spiluðum líka frábæran bolta," sagði Thiago.

,,Ég er ánægður með leikmennina og ánægður með mótið í heild sinni. Allir spiluðu frábærlega og vil ég óska þeim til hamingju með þetta," sagði hann að lokum.
Slapp
banner