Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 18. júní 2013 16:25
Elvar Geir Magnússon
Þórður Guðjóns útilokar að taka sjálfur við liðinu
Þórður Guðjónsson.
Þórður Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skagamenn eru í þjálfaraleit eftir að Þórður Þórðarson sagði upp. Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri knattspyrnufélags ÍA, útilokar að taka sjálfur við liðinu.

„Við erum að skoða í kringum okkur og ætlum að flýta okkur hægt. Ég mun ekki taka sjálfur við liðinu,“ sagði Þórður Guðjóns við Stefán Árna Pálsson á Vísi.is.

Þórður viðurkennir að haft hafi verið samband við Pétur Pétursson en hann hafi hafnað því að taka við. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum hefur ÍA einnig rætt við Þorvald Örlygsson sem hætti með Fram á dögunum.

„Við erum svo sem ekki í vandræðum þegar kemur að þjálfurum. Eins og staðan er í dag munu Dean Martin og Jón Þór Hauksson stjórna liðinu á fimmtudaginn,“ sagði Þórður við Vísi.

Sjá einnig:
Viðtal við Þórð Þórðarson um ákvörðunina
ÍA reyndi að fá Þórð til að halda áfram
Átta menn sem gætu tekið við á Skaganum
Dean Martin stýrir æfingu hjá ÍA í kvöld
Zoran Miljkovic hefur áhuga á að taka við ÍA
Pétur Pétursson segist ekki taka við ÍA
Þórður Þórðarson hættur með ÍA (Staðfest)
Slapp
banner
banner
banner