Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 18. júní 2013 15:05
Magnús Már Einarsson
Zoran Miljkovic hefur áhuga á að taka við ÍA
Zoran ræðir við Milan Stefán Jankovic þjálfara Grindvíkinga.
Zoran ræðir við Milan Stefán Jankovic þjálfara Grindvíkinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Zoran Miljkovic segist hafa áhuga á að taka við ÍA ef leitað verður til hans. Þórður Þórðarson hætti í dag sem þjálfari ÍA og félagið er nú í leit að eftirmanni hans.

,,Auðvitað hef ég áhuga en það er ekki nóg að ég hafi áhuga. Það er mikilvægt að félagið, í þessu tilfelli ÍA, hafi áhuga á mér," sagði Zoran við Fótbolta.net í dag.

Zoran hefur verið á landinu undanfarnar vikur og hann segist tilbúinn í slaginn.

,,Ég er opinn fyrir öllum viðræðum og ég er tilbúinn að taka við liði. Fyrst verður eitthvað félag hins vegar að hringja í mig."

Zoran spilaði með ÍA 1994 til 1996 og hann þekkir til á Akranesi.

,,Ég spilaði með ÍA þar sem ég spilaði með fráfarandi þjálfara Þórði Þórðarsyni, við spiluðum í þrjú ár saman og ég veit allt um félagið. ÍA er með ungt og efnilegt lið en það hefur eitthvað gerst, ég veit ekki hvað. Gengi liðsins verður að vera betra."

Þorvaldur Örlygsson hefur einnig verið orðaður við starfið en ekki hefur náðst í hann. Þá vildi Kristján Guðmundsson ekki tjá sig um málið þegar Fótbolti.net hafði samband.
Slapp