Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. júní 2017 19:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
3. deild: KFG skoraði sigurmark í lokin
KFG fékk þrjú stig á Ólafsfirði.
KFG fékk þrjú stig á Ólafsfirði.
Mynd: Þorsteinn Ólafs
KF 1 - 2 KFG
0-1 Jóhann Ólafur Jóhannsson ('27)
1-1 Milan Marinkovic ('83)
1-2 Brynjar Már Björnsson ('88)

KFG vann dramatískan útisigur á KF í 3. deildinni í dag.

KFG heimsótti KF á Ólafsfjarðarvöll og úr varð hörkuleikur.

Jóhann Ólafur Jóhannsson kom KFG yfir á 27. mínútu, en þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma jafnaði Milan Marinkovic.

Það benti allt til þess að leikurinn myndi enda í jafntefli, en fimm mínútum eftir jöfnunarmark skoraði Brynjar Már Björnsson sigurmark KFG, lokatölur á Ólafsfirði, 2-1 fyrir KFG.

KFG er í þriðja sæti 3. deildar, en KF er í sjötta sætinu.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner