Andri Rúnar Bjarnason er kominn með níu mörk í Pepsi-deildinni í sumar eftir tvö mörk og stoðsendingu í kvöld.
Lestu um leikinn: Grindavík 3 - 1 ÍBV
„Við vorum mjög góðir í fyrri hálfleik en fengum ekki færi í þeim seinni. Þetta var samt þægilegt," sagði Andri eftir leikinn.
„Ég er á þeim tímapunkti að þegar ég fæ færi þá líður mér eins og ég sé að fara að skora. Það er geggjuð tilfinning."
Hversu langt getur Grindavík komist?
„Eins og þetta er að spilast núna lítur topp fjórir ekki illa út. Við erum samt að halda okkur á jörðinni og erum ekkert að spá í þessu."
Getur Grindavík orðið Íslandsmeistari?
„Leicester gat orðið Englandsmeistari svo það er aldrei að vita!
Sjá einnig:
Brjálað stuð í klefa Grindavíkur - Aron klipptur eftir leik
Athugasemdir