sun 18. júní 2017 15:00
Dagur Lárusson
„Cahill ætti að skila verðlaunapeningnum sínum
Gary Cahill
Gary Cahill
Mynd: Getty Images
Mike Pejic, fyrrum knattspyrnumaður og leikmaður Stoke, segir að Gary Cahill sé einn versti varnarmaður í deildinni og að hann ætti að skila verðlaunapeningnum sínum frá því í vor.

Eins og flestir vita þá vann Gary Cahill ensku úrvalsdeildina með Chelsea í vetur en Mike Pejic hefur ekki verið hrifinn af Cahill fyrir enska landsliðið og segist hafa vorkennt Jack Butland að þurfa að spila fyrir aftan hann gegn Frakklandi um daginn.

„Ég fann til með Butland um daginn þegar hann þurfti að spila fyrir aftan Cahill sem er einn versti varnarmaður sem ég veit um, sérstaklega þegar hann er einn á einn með sóknarmanni," sagði Pejic.

„Það var jafn mikið Cahill og Luiz sem að þurftu vernd í þriggja manna vörn Chelsea í vetur."

„Conte ætti í raun að fá verðlaunapening Cahill þar sem að hann tók eftir því snemma að Cahill þurfti auka vernd í Chelsea liðinu." og var Pejic þá að vitna í skiptingu Conte í 3-4-2-1 kerfið í byrjun tímabilsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner