sun 18. júní 2017 23:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Messi og Ronaldo kæmust ekki í liðið hjá Besiktas"
Mynd: Getty Images
Dusko Tosic, varnarmaður Besiktas, hefur látið áhugaverð ummæli falla um Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, tvo bestu leikmenn heims og tvo bestu leikmenn fótboltasögunnar.

Tosic er á því máli að Ronaldo og Messi myndu ekki komast í liðið hjá Besiktas, hann vill frekar hafa þá sem eru í liðinu núna.

„Ég myndi ekki skipta neinum út hjá Besiktas fyrir Messi eða Ronaldo," sagði Tosic við Fanatik.

„Ég elska liðsfélaga mína og liðið mitt."

„Ég hef líka spilað á móti Ronaldo og hann hefur aldrei hrifið mig. Hann spilaði eins og hann væri ekki þarna."

Tosic vill frekar spila með mönnum eins og Ryan Babel, Ricardo Quaresma og Cenk Tosun en Ronaldo og Messi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner