Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. júní 2017 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Pogba fékk Tevez til að brosa
Pogba er alltaf hress.
Pogba er alltaf hress.
Mynd: Getty Images
Lífið hefur ekki verið að leika við Carlos Tevez í Kína, en Paul Pogba, leikmaður Manchester United, fékk hann til að brosa.

Tevez gekk í desember í raðir Shanghai Shenhua í Kína, en þar fær hann 615 þúsund pund í vikulaun, ekki amalegt það!

Þrátt fyrir það hefur honum ekki liðið vel í Kína. Hann hefur átt erfitt með að venjast matarmenningunni í landinu, hann talar ekki málið og stuðningsmenn voru brjálaðir þegar hann fór í Disneyland.

Honum hefur þá ekki gengið vel inn á vellinum þar sem hann hefur aðeins skorað eitt mark í sex leikjum í kínversku ofurdeildinni.

Pogba er þessa stundina í Kína og þar hitti hann á sinn gamla liðsfélaga, hann Tevez.

Tevez brosti þegar hann hitti Pogba eins og sjá má á myndinni hér að neðan, en það fór vel með þeim félögum.

L' Pace! See you again soon brother 🙏🏾 @tevezoficial #pogchina #shanghaishenhua

A post shared by Paul Labile Pogba (@paulpogba) on


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner