Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 18. júní 2018 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cantona gerir grín af Neymar - Með spagettí á höfðinu
Hágreiðslan sem Neymar skartar á HM.
Hágreiðslan sem Neymar skartar á HM.
Mynd: Getty Images
Skiptar skoðanir eru á hárgreiðslunni sem Brasilíumaðurinn Neymar skartar á HM í Rússlandi.

Sjá einnig:
Neymar fær 10 fyrir hárgreiðsluna - 0 fyrir fótboltann

Franska goðsögnin Eric Cantona er ekki hrifinn af hárgreiðslunni og líkir hann henni við spagettí á Instagram eftir að Brasilía gerði 1-1 jafntefli við Sviss á HM í gær.

„Neymar stíllinn... spagettí al dente!" skrifaði þessi fyrrum leikmaður Manchester United við skemmtilega mynd á Instagram. Hann var búinn að setja skál af spagettí á hausinn á sér.

Hér að neðan er myndin.


Athugasemdir
banner
banner
banner