Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 18. júní 2018 06:00
Gunnar Logi Gylfason
Fögnuður Mexíkóa mældist á jarðskjálftamælum
Lozano skoraði mark Mexíkóa
Lozano skoraði mark Mexíkóa
Mynd: Getty Images
Mexíkó vann Þýskaland 1-0 í F-riðli þar sem Hirving Lozano, leikmaður PSV, skoraði eina mark leiksins á 35. mínútu.

Mexíkóar voru betra liðið í fyrir hálfleik og fengu nóg af færum til þess að skora en létu sér eitt mark nægja.

Þegar Lozano skoraði markið fögnuðu Mexíkóar, skiljanlega, gríðarlega mikið og vel.

Svo mikill var fögnuðurinn að hann mældist á tveimur jarðskjálftamælum í Mexico City, höfuðborg Mexíkó, eins og sjá má hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner