Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 18. júlí 2015 16:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
1. deild kvenna: Grindavík missteig sig í Grafarvoginum
Grindavík náði í stig í Grafarvoginn
Grindavík náði í stig í Grafarvoginn
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Fjölnir 2-2 Grindavík
0-1 Marjani Hing-Glover ('26)
1-1 Hlín Hreiðarsdóttir ('52)
2-1 Hlín Hreiðarsdóttir ('55)
2-2 Helga Guðrún Kristinsdóttir ('82)

Fjölnir tók á móti toppliði Grindavík í eina leik dagsins í 1. deild kvenna en honum lauk nú rétt í þessu.

Marjani Hing Glover kom gestunum yfir um miðjan fyrri hálfleik og var staðan 0-1 í hálfleik.

Hlín Hreiðarsdóttir tók sig heldur betur til og setti tvö mörk snemma í seinni hálfleik með stuttu millibili og staðan gjörbreytt, þar sem Fjölnisstúlkur voru komnar yfir.

Helga Guðrún Kristinsdóttir náði þó að bjarga stig fyrir topplið Grindavíkur í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner