Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. júlí 2017 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Assombalonga dýrastur í sögu Middlesbrough (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur keypt sóknarmanninn Britt Assbomalonga frá Nottingham Forest. Assombalonga er nú dýrasti leikmaðurinn í sögu Middlesbrough, en félagið borgar 16 milljónir punda fyrir hann.

Assombalonga, sem er 24 ára, skoraði 30 mörk í 47 byrjunarliðsleikjum í Championship-deildinni með Forest.

Middlesbrough féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, en Assombalonga á að hjálpa liðinu að fara beint upp aftur.

„Ég get ekki beðið eftir því að byrja og æfa með strákunum," sagði Assombalonga við heimasíðu Boro.

„Ég er glaður með að þetta sé klárað og nú get ég farið að einbeita mér að því sem er framundan."



Athugasemdir
banner
banner
banner