Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 18. júlí 2017 08:38
Magnús Már Einarsson
Elmar Bjarnason til Elzagispor (Staðfest)
Mynd: KSÍ
Theódór Elmar Bjarnason hefur skrifað undir samning hjá tyrkneska félaginu Elzagispor.

Elmar yfirgaf AGF í Danmörku á dögunum en mörg félög sýndu honum áhuga í kjölfarið.

Félög frá Ástralíu, Englandi, Grikklandi, Hvíta-Rússlandi og Portúgal sýndu hinum þrítuga Elmari áhuga en hann ákvað að semja við Elzagispor.

„Ég er ánægður með að hafa skrifað undir hjá @elazigspororgtr. Hlakka til að hjálpa liðinu á næsta tímabili," skrifaði Elmar á Twitter.

Elzagispor leikur í tyrknesku B-deildinni en liðið endaði í tíunda sæti þar á síðasta tímabili.



Athugasemdir
banner
banner