Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   þri 18. júlí 2017 22:10
Elvar Geir Magnússon
Tilburg, Hollandi
Fanndís: Skil ekki hvernig hún gat ekki dæmt víti
Fanndís í leiknum í kvöld.
Fanndís í leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var hrikalega svekkjandi," sagði Fanndís Friðriksdóttir eftir tapið gegn Frakklandi í kvöld. Henni fannst vítaspyrnan sem Frakkar skoruðu sigurmarkið úr vera ódýr dómur.

Sjálf átti Fanndís að fá vítaspyrnu í blálok fyrri hálfleiks en ekkert var dæmt.

Lestu um leikinn: Frakkland 1 -  0 Ísland

„Við hefðum átt að fá víti í fyrri hálfleik. Ég var að „kötta" inn á við, hún fer í lappirnar á mér. Ég skil ekki hvernig hún (dómarinn) gat ekki dæmt víti. Ég bara næ því ekki."

Heldur þú að ef þetta hefði gerst í teignum hinumegin að dómarinn hefði bent á punktinn?

„Þær fengu töluvert ódýrari víti en þetta, allavega frá mínu sjónarhorni. Það lítur þannig út að dómarinn hafi borið meiri virðingu fyrir þeim en okkur."

Fanndísi fannst Ísland leika virkilega góðan varnarleik í þessum leik. Hún sjálf hljóp gríðarlega mikið í leiknum.

„Ég var mjög þreytt undir restina en nú er bara að drekka og safna orku fyrir næsta leik."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner