Mario Götze, leikmaður Borussia Dortmund, sneri aftur á fótboltavöllinn í um helgina, í fyrsta sinn síðan í febrúar.
Hann spilaði hálftíma gegn japanska liðinu Urawa Reds á laugardag.
Hann hefur verið að glíma við efnaskiptasjúkdóm og missti af seinni hluta síðasta tímabils, en hann er að koma til. Götze þurfti að hætta að spila og æfa fótbolta í febrúar eftir að sjúkdómurinn var greindur.

„Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir og þetta var gott augnablik fyrir mig," sagði Götze við Perform Group Portals.
„Ég hef verið í endurhæfingu í fimm mánuði, þannig að ég gat ekki æft með liðinu og hef ekki verið neitt með liðinu. Það er frábært að vera kominn aftur í hópinn, að æfa með liðinu."
Athugasemdir