Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 18. júlí 2017 18:05
Bergur Tareq Tamimi
Hafna tilboði Roma í Munir
Mynd: Getty Images
Roma hefur haft mikinn áhuga á þessum 21 ára gamla leikmanni en Barcelona hafnaði í dag tilboði ítalska liðsins í Munir El-Haddadi.

Goal greinir frá þessu.

Munir var boðið eins árs lánssamning en Barcelona telur samninginn ekki uppfylla þau skilyrði sem þurfi.

Roma er þó ekki eina liðið sem hefur áhuga á þessum efnilega leikmanni. Bæði Alaves og Real Sociedad hafa einnig reynt við leikmanninn en mistekist.

Þessi leikmaður var lánaður á seinasta tímabili til Valencia og skoraði þar sex mörki í 22 leikjum.

Munir hefur komið við sögu í 41 leikjum Barcelona og skoraði í þeim 9 mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner