„Þetta er gríðarlega svekkjandi. Mér fannst við þannig séð hafa góða stjórn á leiknum," sagði Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir tapið gegn Frakklandi.
„Við höfðum fulla trú á því að við værum að minnsta kosti að fá stig. Það er ótrúlega svekkjandi að þetta ráðist á vafaatriði. Við getum allavega borið höfið hátt eftir þennan leik."
„Við höfðum fulla trú á því að við værum að minnsta kosti að fá stig. Það er ótrúlega svekkjandi að þetta ráðist á vafaatriði. Við getum allavega borið höfið hátt eftir þennan leik."
Lestu um leikinn: Frakkland 1 - 0 Ísland
„Það eru tveir hörkuleikir eftir. Ef við förum svona í næstu tvo leiki hef ég fulla trú á því að við séum að fara að gera eitthvað flott."
Íslensku áhorfendurnir stóðu sig hrikalega vel í stúkunni.
„Vonandi verður þetta svipað ef ekki betra í næsta leik. Það er ótrúlega gaman að upplifa þetta," sagði Hallbera.
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir