Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. júlí 2017 21:42
Magnús Már Einarsson
Harpa mætti með son sinn í viðtöl
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Harpa Þorsteinsdóttir spilaði síðasta korterið þegar Ísland tapaði naumlega 1-0 gegn Frökkum á EM í kvöld.

Fimm mánuðir eru síðan Harpa eignaðist sitt annað barn en sonurinn Ýmir kom þá í heiminn.

Fjölskylda Hörpu er a EM í Hollandi og hún sinnir Ými á milli leikja.

Eftir leikinn í kvöld mætti Harpa með Ými með sér í viðtölin. Ýmir lét fara vel um sig í fanginu á Hörpu á meðan hún svaraði spurningum eins og sjá má á myndunum hér til hliðar og hér að ofan.

Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.

Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner