þri 18. júlí 2017 10:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lukaku: Ég er kominn hingað til að skora mörk
Lukaku fagnar marki sínu í nótt.
Lukaku fagnar marki sínu í nótt.
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku var ánægður eftir að hafa skorað sitt fyrsta mark fyrir Manchester United í nótt.

Lukaku var keyptur til United, frá Everton, fyrir 75 milljónir punda í byrjun síðustu viku.

Hann spilaði sinn annan leik fyrir félagið í nótt, en leikurinn var æfingaleikur í Bandaríkjunum gegn Real Salt Lake.

Lukaku tókst að skora annað mark United í leiknum, en það reyndist sigurmark í 2-1 sigri Manchester United.

„Ég er kominn hingað til að skora mörk," sagði Lukaku við sjónvarpsstöð Man Utd eftir leik.

„Hjá Manchester United, þá spilum við til að sigra. Þannig er hugarfar mitt þegar ég fer inn á völlinn. Allt annað fylgir."



Athugasemdir
banner
banner
banner