Mist Rúnarsdóttir er einn af sérfræðingum Fótbolta.net um kvennalandsliðið en Mist hefur um margra ára skeið fjallað um kvennaboltann fyrir síðuna.
Arnar Daði Arnarsson ræddi við Mist í Tilburg um leikinn framundan gegn Frakklandi.
Um er að ræða fyrsta leik Íslands á EM en flautað verður til leiks klukkan 18:45 að íslenskum tíma.
Mist segir að búast megi við þéttu og skipulögðu íslensku varnarliði sem ætlar að nýta sína sénsa gegn sterkum mótherjum.
Spjallið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan en þar fer Mist meðal annars yfir líklegt byrjunarlið
Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum
Fótbolti.net er með öflugt teymi í Hollandi og er hægt að fylgjast með öllu bak við tjöldin á Snapchat (Fotboltinet), á Instagram og öðrum samskiptamiðlum okkar.
Leikir Íslands á EM:
Ísland 0-1 Frakkland
Ísland 1-2 Sviss
Ísland 0-3 Austurríki
Athugasemdir