Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 18. júlí 2017 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndbönd: Aron Jó skoraði og lagði upp
Mynd: Getty Images
Aron Jóhannsson átti góðan leik um helginga þegar Werder Bremen spilaði gegn VfL Osnabruck í leik sem er hluti af undirbúningstímabilinu.

Aron skoraði sitt fyrsta mark í tæplega ár þegar hann kom Werder á bragðið, en tveimur mínútum eftir að hann skoraði þá var hann búinn að leggja upp fyrir Zlatko Junuzovic.

Aron var tekinn af velli þegar klukkutími var liðinn af leiknum.

Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Arons í sumar, en hann var mikið út í kuldanum hjá þýska félaginu á síðasta tímabili.

Alexander Nouri, þjálfari Werder Bremen, hefur staðfest það að Aron fái undirbúningstímabilið til að sanna sig og þetta var góð byrjun.

„Undirbúningstímabilið mun skera úr um það í hvaða hlutverki hann verður á næsta tímabili," sagði Nouri á blaðamannafundi á dögunum.

Hér að neðan má sjá myndbönd af marki og stoðsendingu Arons í leiknum.





Athugasemdir
banner
banner
banner