Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
banner
   mán 18. ágúst 2014 21:38
Brynjar Ingi Erluson
Bjarni Guðjóns: Hann er aldrei að taka aukaspyrnuna
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram í Pepsi-deild karla, var allt annað en sáttur með 3-0 tap liðsins gegn Breiðablik í kvöld.

Blikar kláruðu Framara á fimmtán mínútum en öll þrjú mörk liðsins komu á sex mínútna kafla undir lok leiks.

,,Kannski fullstórt tap og mér fannst við lélegir í fyrri hálfleik en eigum samt tvö mjög fín tækifæri til að skora.Við komum ekki sterkir inn í seinni hálfleikinn en það er eins og við séum að vinna okkur inn í hann, gefum svo mark og svo annað mark og annað mark," sagði Bjarni við fjölmiðla í kvöld.

,,Það er erfitt við það að etja ef við ætlum að gefa svona mörk á okkur og það eru bara einstaklingsmistök sem gefa þrjú mörk í þessum leik."

Árni Vilhjálmsson skoraði mjög svo umdeilt mark á 78. mínútu, markið sem má segja að hafi verið vendipunktur leiksins. Aukaspyrna var dæmd á Blika og sendi Hafsteinn Briem boltann í átt að Denis Cardaklija, markverði Fram, en Árni hljóp inn í sendinguna og skoraði.

,,Þarna kemur þetta aðeins inn í skilninginn. Ef þú horfir á látbragð leikmanna, hvað þeir eru að gera. Hann er aldrei að taka aukaspyrnuna, ef hann er að taka hana þá sendir hann á hann þéttingsfast. Hann skilur hann ekki eftir miðja leið á milli, hann ætlar að láta hann fá boltann og sparkar að vísu í hann."

,,Hann hefði getað stoppað leikinn og látið hann taka aftur og það hefði enginn kvartað yfir því en þetta var mistök af okkar hálfu. Ég vil meina að hann hafi getað gert bæði, hann hefði getað stoppað en gat líka látið þetta fara eins og þetta fór,"
sagði Bjarni ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner