banner
   fös 18. ágúst 2017 20:59
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Redknapp og lærisveinar hans töpuðu
Birmingham og Burton mættust í kvöld
Birmingham og Burton mættust í kvöld
Mynd: Getty Images
Burton Albion 2 - 1 Birmingham
0-1 Jacques Maghoma ('29 )
1-1 Marvin Sordell ('50 )
2-1 Lloyd Dyer ('66 )

Burton Albion vann góðan 2-1 sigur á Birmingham í Championship-deildinni á Englandi í kvöld. Lloyd Dyer gerði sigurmark heimamanna.

Það byrjaði vel fyrir Harry Redknapp og lærisveina hans í Birmingham í kvöld en Jacques Maghoma kom liðinu yfir á 29. mínútu og stóðu leikar þannig í hálfleik.

Enski framherjinn Marvin Sordell jafnaði metin fyrir Burton þegar fimm mínútur voru búnar af síðari hálfleik og sextán mínútum síðar gerði Dyer sigurmarkið.

Þetta var fyrsti sigur Burton í deildinni en liðið hafði tapað fyrstu þremur leikjunum sínum. Birmingham er í 13. sæti með 4 stig en Burton í 19. sæti með 3 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner