Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. ágúst 2017 09:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
PSG ætlar ekki að selja Draxler til Barcelona
Draxler fer ekki neitt
Draxler fer ekki neitt
Mynd: Getty Images
PSG ætlar ekki að leyfa Julian Draxler að fara frá félaginu, þrátt fyrir áhuga Barcelona.

Draxler var nefndur besti leikmaður Álfukeppninnar fyrr í sumar en Þýskaland sigraði keppnina eftir sigur á Síle í úrslitaleik.

Barcelona er í óðaönn að finna eftirmann Neymar sem var seldur, einmitt til PSG fyrir metfé. Þrátt fyrir komu Neymar mun Draxler ekki fara.

Fleiri lið hafa áhuga á Draxler, en Liverpool og Arsenal vilja bæði fá hann. Arsenal hefur lengi verið á eftir Þjóðverjanum.

Draxler kom til PSG í janúar á þessu ári og hefur leikið 24 leiki fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner