Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. ágúst 2017 17:15
Magnús Már Einarsson
Sakho á óskalista WBA
Mynd: Getty Images
WBA hefur áhuga á Mamadou Sakho varnarmanni Liverpool en BBC greinir frá þessu.

Sakho hefur verið úti í kuldanum hjá Liverpool síðan hann lenti í rifrildi við Jurgen Klopp í æfingaferð í Bandaríkjunum í fyrrasumar.

Á síðasta tímabili var Sakho í láni hjá Crystal Palace síðari hluta tímabils en Liverpool vill fá 30 milljónir punda fyrir Frakkann.

WBA er nú að skoða möguleikann á að fá Sakho í sínar raðir.

Manchester City er að reyna að fá varnarmanninn Jonny Evans frá WBA en í gær hafnaði WBA 18 milljóna punda tilboði í hann.
Athugasemdir
banner