Tottenham er að ganga frá kaupum á Davinson Sanchez varnarmanni Ajax á 42 milljónir punda.
Sanchez verður fyrsti leikmaðurinn sem kemur til Tottenham í sumar og jafnframt verður hann dýrastur í sögu félagsins.
Hann bætir þar met Moussa Sissoko sem kom frá Newcastle á 31,5 milljónir punda í fyrra.

Sanchez er 21 árs miðvörður frá Kolumbíu en hann er sjálfur búinn að ná samkomulagi við Tottenham.
Ajax hagnast vel á sölunni á Sanchez því hann kom til félagsins frá Atlético Nacional á 3,8 milljónir punda fyrir einungis einu ári síðan.
Athugasemdir