Spænski íþróttamiðillinn Marca ber höfuð og herðar yfir aðra slíka miðla á Spáni og þaðan fáum við oftast helstu fréttir af því sem er að gerast í spænska fótboltanum.
Í dag er brugðið út af vananum á forsíðu blaðsins sem allajafna fjallar um íþróttir.
Stóra fyrirsögnin á forsíðu blaðsins segir: „Hoy no podemos hablar de deporte," eitthvað sem gæti á íslensku útlagst sem: „Við getum ekki fjallað um íþróttir í dag."
Tilefnið er hryðjuverkaárásin hræðilega á Römblunni í gær þar sem ódæðismaður keyrði inn í hóp af fólki, myrti með því 13 og yfir 100 eru slasaðir.
Fyrir neðan fyrirsögnina birtir Marca svo forsíður nokkurra enskra og spænskra dagblaða sem fjalla um ódæðið.
Forsíðuna má sjá í myndinni sem fylgir fréttinni.
Athugasemdir