West Ham er í viðræðum við portúgalska félagið Sporting Lisbon um kaup á miðjumanninum William Carvalho.
Viðræðurnar hafa gengið hægt en Sporting vill fá háa upphæð fyrir leikmanninn.
Ákvæði er í samningi Carvalho um að hann megi fara frá félaginu ef tilboð upp á 40 milljónir punda komi í hann.
Sporting ætlar ekki að leyfa honum að fara á minna en 40 milljónir og því hefur þetta dregist á langinn.
Carvalho leikur sem varnarsinnaður miðjumaður en hann er portúgalskur landsliðsmaður. Hann var í byrjunarliði Portúgals í úrslitaleiknum gegn Frakklandi á Evrópumótinu í fyrra. Portúgal endaði sem sigurvegar líkt og flestir vita.

Athugasemdir