Heimild: Football Italia
Sterkur orðrómur er í gangi á ítalíu að vængmaðurinn Jonathan Biabyani, leikmaður Parma, hafi fallið á læknisskoðun hjá AC Milan í síðasta mánuði vegna hjartagalla.
Þessi eldsnöggi leikmaður var við það að ganga í raðir Milan og hafði félagið þegar birt myndir af honum í treyju félagsins þegar félagaskiptin féllu niður.
Upprunalega var það gefið út að Cristian Zaccardo, sem átti að ganga í raðir Parma sem hluti af kaupverðinu, hafi hafnað samningi Parma. Nú er hinsvegar talið að Biabiany hafi sjálfur fallið á læknisskoðun.
Læknateymi Milan mun hafa komist að smávægilegum hjartagalla og ákveðið hafi verið að falla frá kaupunum. Ítölsk persónuverndarlög meina hinsvegar félögunum að greina frá málinu þar sem um er að ræða heilsufarsögn leikmannsins.
Athugasemdir