Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 18. september 2014 12:00
Magnús Már Einarsson
Drogba: Ég er eins og diesel-vél
Mynd: Getty Images
Didier Drogba vill að stuðningsmenn Chelsea sýni honum þolinmæði á meðan hann kemst aftur í sitt gamla form.

Hinn 36 ára gamli Drogba var í byrjunarliði Chelsea gegn Schalke í gær en hann náði ekki að skora í 1-1 jafntefli liðanna.

,,Það góða er að það var enginn verkur í ökklanum svo nú get ég byrjað að æfa af krafti til að bæta formið," sagði Drogba.

,,Mér leið mun betur í síðari hálfleik. Ég er eins og diesel-vél, ég þarf tíma."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner