Ingvar Jónsson, markvörður Stjörnunnar, var allt annað en ánægður þrátt fyrir 1-0 sigur liðsins gegn Víkingi í Pepsi-deildinni í kvöld.
Gestirnir úr Garðabænum voru ljónheppnir að taka stigin þrjú og var það í raun einungis Ingvari að þakka að svo fór, en hann varði oft frábærlega.
Gestirnir úr Garðabænum voru ljónheppnir að taka stigin þrjú og var það í raun einungis Ingvari að þakka að svo fór, en hann varði oft frábærlega.
,,Við vorum alveg skelfilega lélegir, þetta var okkar langlélegasti leikur í sumar. Ef við spilum svona síðustu þrjá leikina náum við ekki miklum árangri. Við vorum bara stálheppnir að halda hreinu og fá ekki mark á okkur, Víkingarnir áttu skilið meira," sagði Ingvar við Fótbolta.net.
,,Ég skil ekki hvað var í gangi, menn voru bara ekki tilbúnir í þetta. Ég trúi því varla ennþá að við höfum náð þremur stigum eftir svona skelfilega frammistöðu. Meistaraheppni vonandi."
,,Það var eins og hálft liðið nennti ekki að vera inni á."
Athugasemdir