Partizan frá Belgrad fékk Tottenham í heimsókn í fyrstu umferð riðlakeppnarinnar í Evrópudeildinni.
Serbneskir stuðningsmenn heimamanna mættu á leikinn með hatursfullan borða sem náðist mynd af.
Serbneskir stuðningsmenn heimamanna mættu á leikinn með hatursfullan borða sem náðist mynd af.
Borðinn sýnir gyðingahatur og má sjá á mynd hér til hliðar. Á borðanum stendur ,,bara gyðingar og píkur" og var hann skreyttur til að líkjast lógói bresku verðlaunaþáttanna Only Fools and Horses, eða ,,Bara flón og hestar".
Líklegt er að evrópska knattspyrnusambandið setji Partizan í heimaleikjabann og verður félagið eflaust sektað fyrir framkomu stuðningsmanna sinna.
Athugasemdir