Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. september 2014 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Sergi Roberto fær nýjan samning hjá Barcelona
Sergi Roberto fagnar marki með Lionel Messi og Neymar.
Sergi Roberto fagnar marki með Lionel Messi og Neymar.
Mynd: Getty Images
Hinn 22 ára gamli Sergi Roberto, leikmaður Barcelona, hefur náð samkomulagi við katalóníuliðið um nýjan samning

Barcelona segir að Roberto muni skrifa undir fimm ára samning á næstu dögum, en leikmaðurinn hefur leikið með öllum yngri landsliðum Spánverja.

Hann hefur verið viðloðinn aðallið Barcelona frá árinu 2010. Hann hefur þó ekki náð að festa sig í byrjunarliðinu en hefur þegar spilað 21 leik í deildinni.

Roberto kom fyrst til Barcelona einungis 14 ára gamall. Er hann talinn eiga bjarta framtíð hjá félaginu og hefur hann meðal annars verið titlaður sem arftaki Xavi eða Andres Iniesta í liðinu.
Athugasemdir
banner
banner