Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 18. september 2014 16:00
Magnús Már Einarsson
Godsamskipti
Grétar Rafn Steinsson: Hnyttnir I Amsterdam #ajapsg
Grétar Rafn Steinsson: Hnyttnir I Amsterdam #ajapsg
Mynd: Twitter
Elvar Geir Magnússon: Hitað upp með risabolta í Krikanum
Elvar Geir Magnússon: Hitað upp með risabolta í Krikanum
Mynd: Twitter
Mynd: Fótbolti.net
Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter í boði Vodafone. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.

Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet



Arnar Smárason, Víðir
KSÍ á bara að henda í gömlu góðu miðasöluna niðrá Laugardalsvelli. Karólína í miðasölunni og lengsta röð í heimi. Klikkar aldrei.

Andri Rúnar Bjarnason, BÍ/Bolungarvík
Þórir Hákonar er einhversstaðar hlæjandi þessa stundina #ToldYouSo

Högni Haraldsson, fótboltaáhugamaður
Á allri þessari tækniöld, er ekki mögulegt að gera miðasölukerfið betra? Þetta er hreinlega fráleitt! #midiIS #KSI

Sigurður Gísli, fótboltaáhugamaður
Maður dagsins: Þórir Hákonarson. #Itolduso #fotbolti #fotboltinet #ksi

Elvar Geir Magnússon, Fótbolti.net
Gerir fólk sér grein fyrir hvað Óli Jó á stóran þátt í uppgangi landsliðsins?Án hans hefði það aldrei getað farið upp um svona mörg sæti #97

Þorsteinn Guðmundsson, grínisti
midi.is hrynur ef fólk sýnir of mikinn áhuga. Eins og mannskja með lítið sjálfstraust.

Magnús Þ. Lúðvíksson, fótboltaáhugamaður
Landamæravörðurinn í Marokkó virti vegabréfið lengi fyrir sér. Leit svo dulur á mig og sagði: "Iceland. Gudjohnsen. Played with his father."

Kristjana Arnarsdóttir, Fram
Ísland í 34. sæti á heimslista FIFA. Þess má geta að Saving Private Ryan er í 34. sæti á IMDB. Sjáiði hvað við erum mögnuð!

Hörður Magnússon, Stöð 2 Sport
Ath aukaprógramm af Pepsimörkum í kvöld kl.21.Leikir dagsins til umfjöllunar og Fram-Fjölnir.Toddman og Reynir Lér klárir. #Pepsi365

Marteinn Þór Pálmason, fótboltaáhugamaður
Íslenska landsliðið í 34. sæti heimslista FIFA, en einungis með 9.800 manna stúku! #skammarlegt #fotboltinet

Hrafnhildur Agnarsdóttir KR,
Horfði á Class of '92 í þriðja skiptið í gær. Er sannfærð um að David Beckham sé myndarlegasti maður á jarðríki.
Athugasemdir
banner
banner
banner