fös 18. september 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Eyjapeyjar æfðu í 200 metra hæð
Mynd: Eysteinn Hauksson
Mynd: Eysteinn Hauksson
3. flokkur ÍBV æfði við óvenjulegar aðstæður í gær en peyjarnir æfðu í yfir 200 metra hæð uppi á Molda í Vestmannaeyjum.

Eysteinn Hauksson, þjálfari 3. flokks, ákvað að brjóta upp æfingaformið í gær og prófa að taka reitabolta og spil á óvenjulegum stað.

„Þetta var óvissuferð hjá þeim, þar sem keppnistímabili þeirra er nýlokið. Þeir féllu naumlega úr sterkum B riðli og þegar menn falla er ekkert annað að gera en að stefna strax UPP á við," sagði Eysteinn léttur í bragði við Fótbolta.net í dag.

„Hópurinn gekk fyrst frá Týsheimlinu og inn í Herjólfsdal, hver um sig með bolta í hönd, þar sem þeim var tilkynnt um að sá sem yrði fyrstur upp á eggjarnar fengi verðlaun."

„Brekkan tekur gríðarlega í læri og kálfa en útsýnið sem blasti við þegar upp var komið fékk menn til að gleyma öllu slíku. Þaðan var gengið upp á Molda, en þar má segja að sé útsýnispallur af náttúrunnar hendi."

„Þarna var smellt upp tveimur reitum og spilað í smá tíma áður en lagt var af stað á lokahóf yngri flokka, þar sem menn lentu beint í grillveislu."


Hér að neðan má sjá fleiri myndir af æfingunni hjá strákunum.
Athugasemdir
banner
banner