„Það er gaman að vinna 8-0,“ sagði Fanndís Friðriksdóttir eftir stóran sigur á Færeyjum fyrr í kvöld. Fanndís var á skotskónum og skoraði tvö íslensku markanna. Það seinna var sérlega glæsilegt.
Lestu um leikinn: Ísland 8 - 0 Færeyjar
„Fyrra markið var þannig að það hefði einhver þurft að snerta hann eða enginn snerti hann og hann rúllaði bara inn. Seinna markið var aðeins dýrara,“ sagði Fanndís og glotti, aðspurð um mörkin sín.
„Það var gott að fá mark svona snemma í leikinn og þá gat maður aðeins slappað af en mér fannst við hæglega hafa getað skorað fleiri mörk samt,“ sagði Fanndís en það var ekki hægt að sleppa henni nema spyrja aðeins um nýja lífið í Frakklandi.
„Það er öðruvísi en mjög skemmtilegt. Þetta er krefjandi verkefni þar sem það er ekki mikil enskukunnátta en mjög spennandi.“
Nánar er rætt við Fanndísi í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir