Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   mán 18. september 2017 21:59
Mist Rúnarsdóttir
Freysi: Gerðum þetta af fagmennsku
Freyr var ánægður með liðið sitt sem byrjar undankeppni HM á stórum sigri
Freyr var ánægður með liðið sitt sem byrjar undankeppni HM á stórum sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við hefðum getað gert betur oft á köflum en þetta var bara fínt. Ég er ánægður með mjög margt í þessum leik,“ sagði landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson eftir 8-0 sigur á Færeyjum í fyrsta leik undankeppni HM.

Lestu um leikinn: Ísland 8 -  0 Færeyjar

„Mér fannst við gera þetta af fagmennsku. Við vorum þolinmóð. Það er auðvelt að missa taktinn og fara út í einhverja hluti sem að maður á ekki að vera að reyna. Við vorum að æfa hluti sem við þurfum að ná tökum á,“ sagði Freyr.

Næsta verkefni Íslands er öllu meira krefjandi en það eru útleikir gegn Þýskalandi og Tékklandi sem spilaðir verða eftir mánuð.

„Það er allt annað verkefni. Það horfir vel við mér. Ég hlakka mikið til. Við þurfum að undirbúa okkur vel,“ sagði landsliðsþjálfarinn meðal annars en hægt er að horfa á allt viðtalið við hann í sjónvarpinu hér að ofan.

Þar kemur hann meðal annars inná það jákvæða sem liðið tekur með sér úr þessum leik, frammistöðu markaskorarans Elínar Mettu og nýja leikstöðu Ingibjargar sem hægri bakvörður.
Athugasemdir
banner
banner