Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliði Íslands var sátt eftir leikinn í kvöld:
"Já ég er mjög sátt, skorum 8 í dag og tökum 3 stig. Góð byrjun á nýrri keppni."
"Já ég er mjög sátt, skorum 8 í dag og tökum 3 stig. Góð byrjun á nýrri keppni."
Lestu um leikinn: Ísland 8 - 0 Færeyjar
Þetta var fyrsti leikur Íslands í undankeppni HM sem fer fram í Frakklandi 2019. Sara var ánægð með byrjunina.
"Góð stemming. Allar tilbúnar til að henda EM til hliðar og byrja á nýju verkefni. Flottur leikur til að byrja á. Fáum sjálfstraust úr þessum leik en við vitum að næsta verkefni er mun meira krefjandi."
Aðspurð hvort Sara hafi fundið til með þeim færeysku var svarið stórt nei.
Nánar er rætt um leikinn og framhaldið hjá Söru í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir